Yfirlit yfir okkar helstu meðferðir og klippingar sem miða að náttúrulegri heilsu hársins.
Umönnun
Klipping
Litun og strípur
Næring og krullur
Klippingar fyrir fullorðna og börn, allt frá léttri snyrtingu á toppi að nýrri klippingu. Við bjóðum einnig upp á snöggar herraklippingar og snoð.
Heillitun, rótarlitun, strípur, aflitun og tóner. Hvort sem þú vilt viðhalda litnum eða breyta til hjálpum við þér að finna rétta tóninn
Við bjóðum upp á djúpnæringu og permanent og veitum ráðgjöf um hvað hentar þínu hári.
Næring
Blástur, lagning og greiðslur fyrir hversdaginn og sérstök tilefni. Við bjóðum einnig upp á brúðar- og fermingargreiðslur
Greiðslur og blástur


Hjá Hárfínt
Langar þig að breyta til?
Stundum þarf bara smá snyrtingu, stundum langar mann í alveg nýtt útlit. Við hlustum á þínar hugmyndir og hjálpum þér að finna klippingu eða lit sem þú ert ánægð með.
Þú þarft ekki að vera búin að ákveða allt áður en þú sest í stólinn hjá okkur.
Við hlökkum til að sjá þig
Finndu þjónustuna og tímann sem hentar þér á bókunarsíðunni Noona
